Bloggari ársins!

Jæææææjaaaaa......

Ég held að það sé óhætt að útnefna mig VERSTA bloggara ársins Grin hahahaha

Ég ákvað samt að henda inn e-u til að missa þetta ekki alveg úr höndunum Tounge 

Ég sat í gær við tölvuna mína og var að skoða Youtube, eins og ég er mjög gjörn á að gera Smile Datt mér ekki allt í einu í hug að skoða gömul myndbönd með Michael Jackson. Hann á sko heilan aragrúa af fallegum lögum í gegnum tíðina. Ég horfði á hann með aðdáun, hann var svo flottur! Mér var hugsað til þess hvernig honum líður í dag... búinn að missa allt gjörsamlega Frown Þessi fallegi blökkumaður er orðinn hvítur, fátækur og óhamingjusamur (ímyndar ég mér) miðaldra maður með mjög svo flekkað mannorð. Ég vil ekki trúa því að hann hafi gert þetta sem hann er sakaður um að hafa gert en ég er samt alltaf í smá vafa..... vona það bara innilega hans vegna að hann hafi ekki gert þessa hluti sem hann á að hafa gert....... Hvar ætli hann sé í dag og hvað ætli hann geri dags daglega? Ætli hann eigi e-n tímann eftir að koma aftur fram í svðsljósið sem söngvari og "performer"?? Ef einhver veit má hann endilega upplýsa mig um það Tounge

Þetta var pæling dagsins W00t Læt fylgja með eitt af flottustu lögunum sem hann hefur sungið........... hmmmm..... höfum það tvö! 

http://www.youtube.com/watch?v=aSqo17o2a1w

http://www.youtube.com/watch?v=aSqo17o2a1w

Njótið! Wink


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband